Þarf ekki jöfnuður að ganga í báðar áttir?

Á sama tíma og ég gleðst yfir því að konur séu samkvæmt þessu að verða valdameiri, þá hljóta kvenskörungar og jafnaðarfólk að mótmæla þessum ójöfnuði sem að er myndast í kynjapólitíkinni?


mbl.is „Konur til aukinna áhrifa“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undarlegur haförn

Pant fá gogginn á þessu dýri, verður örugglega verðmætur :)

 

Þá var goggurinn 6,3 metrar á lengd og klærnar 21,1 sentimetri.


mbl.is Stærsti haförn sem sést hefur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Annað dæmi um síheimsku.

Grænfriðungar er upp til hópa gott fólk sem farið hefur offari í að framfylgja nánast Stalinískum skoðunum sínum á náttúruvernd.

Ég er alveg sammála Leilu Dean að olíuborpallar eru ekki fögur sjón, og geta valdið ægilegum spjöllum eins og ekki svo fjarlæg dæmi sanna.

Það sem þau átta sig ekki á er að verið er að ráðast á kolvitlausann enda! Heimurinn þarf olíu...á meðan hann þarf hana munu þessir pallar og raunar öll vinnsla sem tengist eldsneytisframleiðslu ekki hverfa. Mótspyrnan er hatrömm, vægast sagt.

Ég er þess fullviss að ef þessi hópur af einstrengislegu fólki hefði lagt 20% af tíma, hugsun og fjármagni því sem það hefur sóað í tilgangslausar og oft á tímum heimskulegar framkvæmdir, þá værum við komin með aflgjafa sem hefði skilað okkur til tungslins á einum sykurmola.

Já það er ekki öll síheimskan eins.


mbl.is Danski herinn hótar grænfriðungum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn ein vitsmunabrekkan

Það verður seint sagt að hægri vængur Bandarískra pólitíkusa stígi í vitið eða leggi mikla rækt í gagnasöfnun sem ekki kemur þeim til góða. Hún grípur greinilega það á lofti að forsvarsmenn wikileaks hafi á einhverjum tímapunkti viðrað það að hýsa síðuna hér, gera Ísland að fyrirmynd frjálsrar tjáningar.

Ef þessari greindarlitlu konu hefði dottið í hug (eða hennar rannsóknarhóp) að kanna eitthvað sem varðar þetta mál held ég að þeir hefðu lítið fundið sem að tengir litla landið okkar við þetta.

  3     1 ms     1 ms     1 ms  193-4-254-245.static.metronet.is [193.4.254.245]

  4    45 ms    45 ms    45 ms  po24-E200-02-London.c.is [217.151.190.206]
  5    47 ms    46 ms    46 ms  gi9-13.mpd01.lon01.atlas.cogentco.com [149.6.146.81]
  6    43 ms    43 ms    44 ms  te2-1.3493.mpd02.lon01.atlas.cogentco.com [130.117.2.18]
  7    54 ms    55 ms    54 ms  te0-0-0-0.mpd21.ams03.atlas.cogentco.com [130.117.1.97]
  8    63 ms    62 ms    63 ms  te0-3-0-0.ccr21.ham01.atlas.cogentco.com [130.117.50.54]
  9    79 ms    79 ms    79 ms  te4-1.ccr01.sto01.atlas.cogentco.com [154.54.36.246]
 10    80 ms    79 ms    78 ms  te1-1.ccr01.sto02.atlas.cogentco.com [130.117.48.250]
 11    81 ms    79 ms    80 ms  cgnt-126.kn1.sth.portlane.net [149.6.168.126]
 12    84 ms    83 ms    82 ms  i2b-154.kn1.sth.portlane.net [80.67.0.154]
 13    80 ms   132 ms    80 ms  sth-sod1-crdn-1-ge-1-2-801.i2b.se [178.16.212.10]
 14    81 ms    80 ms    81 ms  sth-sln1-crdn-1-ge-2-3-800.i2b.se [178.16.212.5]

 15    81 ms    79 ms    80 ms  cust-prq-nt.i2b.se [178.16.212.2]
 16    79 ms    79 ms    80 ms  host-88-80-17-21.cust.prq.se [88.80.17.21]

 

Einfalt traceroute sem að endar í svíþjóð. Svo er síðan sjálf sennilega spegluð út um allt.


mbl.is Vill loka fyrir Wikileaks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju......

eru ekki allar eignir þessara aðila kyrrsettar. Gera skal litla glæpavoffanum það ljóst að allir þeir sem að lyfta litlaputta til að hjálpa honum verði dregnir niður í það ruslasvað þar sem að persóna hans lifir.

Hvernig ætli litla bændastráknum Jóni líði núna þegar hann skyndilega upplifir það að geta ekki stjórnað öllu...að það hafi verið ansi gott að eiga banka til að fela skítaslóðirnar eftir sig. Nú þegar hann er ekki lengur í þeirri stöðu þá treystir hann á það að þeir sem eru á eftir honum séu vitlausari en hann! Ekki líklegt.

Góðar stundir.


mbl.is 585.648 bresk pund kyrrsett
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gáfumenni

Þessi einstöku gáfumenni sem nú stjórna landinu okkar ætluðu nú aldeilis að moka inn aurunum með því að hækka áfengið.

Það sem að þessir einstöku gáfumenni áttuðu sig ekki á var að fólk myndi einfaldlega hætta að kaupa áfengi sökum verðs, það varð einnig raunin.  Það að auki þá skilaði þessi hækkun gáfumennanna sér beint inn í vísitöluna sem að leiddi til hærri verðbólgu. Þá hækka verðtryggðu lánin enn meira, kaupmáttur minnkar og enn minna er keypt af áfengi.

Já það er ekki að spyrja að gáfum þessara einstaklinga sem að stýra landinu okkar í dag.


mbl.is Stefnulaus stjórnvöld í áfengismálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Draumórar

Það liggja engin verðmæti í því sem enginn vill kaupa. Þrátt fyrir að hægt væri að pranga þessum skikum inn á gjaldþrota byggingarfélög þá er enginn til að kaupa þær íbúðir sem að kæmu til með að rísa þarna. Við erum að drukkna í tómum nú þegar!

 Það seinasta sem að okkur vantar núna er enn eitt hverfið sem að enginn kemur til með að hafa efni á að kaupa í, því að við getum nú einnig gert fastlega ráð fyrir að húsnæði á þessu svæði verði verðlagt í samræmi við staðsetningu.

Hvernig á svo að fjármagna flutning flugvallarins? Hvenær er stefnt á að Vatnsmýrin verði byggingarhæf? Hvernig á að fjármagna þann undirbúning? Við hvaða tímabil í verðlagi er þessi tala, 70 milljarðar miðuð?

 Mögulega gæti þessi framkvæmd farið að skila einhverju í kassann eftir svona 2-3 ár í besta falli...þangað til er þetta bara aukabaggi á borgina.

 PS: Endilega láta laga síðuna ykkar.


mbl.is Vatnsmýrin „í gíslingu" fjórflokksins í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hirða draslið.

Enginn af þessum lýð á að fá að sjá nokkuð af sínum eigum aftur. Að sjálfsögðu komast þeir þá í uppnám þegar í ljós kemur að þeir eigi ekki að fá brunarústirnar frítt til baka, eftir að hafa brennt þær niður.

Vanhæfni, græðgi og glæpsamlegt hjarðeðli hefur einkennt rekstur Exista! Það er mjög sorglegt í ljósi þess að þessir bræður byggja upp Bakkavör á heiðarlegan hátt. Byrjuðu smátt og stækkuðu hægt og rólega við sig....svo gerist eitthvað! Ætli þeir hafi kynnst mönnum eins og J.Á eða B.Þ.B?

Nei þessir menn eiga heima einhversstaðar annars staðar en við fundarborð!

Góðar stundir.


mbl.is Greiður aðgangur að sjóðum Kaupþings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og enn standa fjölmiðlar sig!

Líkamsárás í Bökkunum sem eru staðsettir í neðra Breiðholti. Samt sjá þeir sig knúna til að birta myndir af Efra Breiðholti og Fellunum eins og það séu einu svæðin sem eitthvað gerist?

Spurning hvort fréttamaður hafi verið í annarlegu ástandi þegar hann skrifaði greinina, eða mögulega að hann sé ekki fróðari en svo að vita ekki hvar bakkarnir eru.

Dæmigerð Íslensk frétta(ó)mennska.

Góðar stundir.


mbl.is Líkamsárás í Breiðholti í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síheimska?

Skemmtilegt orð sem að hægt er að nota yfir fólk sem að ekki lærir af mistökum.

Ég held að öllum sé orðið ljóst að Ísland stefnir í greiðslufall. Eina sem mögulega gæti forðað því er gríðarleg aukning á framleiðslu innanlands, framleiðslu sem að ekki verður til nema með aukningu kvóta, stóriðju eða einhverju í þá áttina.

Stóriðja er eitthvað sem mér er meinilla við, í það minnsta í þeirri birtingarmynd sem hún er að verða hér. Ég sé landið okkar fyrir mér sem eitt af kolanámuþorpunum í Bretlandi þar sem að allt byggðist upp á einum atvinnuvegi sem ekki krafðist menntunar né sérhæfni, einungis ódýrs vinnuafls sem tók allri vinnu með þökkum. Það vita allir hvað síðan gerðist eftir að kolin kláruðust.

Mér finnst stjórnmálamennirnir okkar, nánast allir með tölu, vera síheimskir! Þeir læra ekki af mistökum, hlusta ekki á aðra og guð forði okkur frá því að þeir sýni samstarfsvilja með öðrum flokkum. Stjórnkerfi okkar í dag er að hluta til mjög líkt AGS. Einkennist af yfirgangi og stjórnsemi, löngun til að drottna hvað sem til þarf. Rödd annarra skiptir ekki máli, þarna ræði ég um alla flokka....bæði þá sem stunda þetta núna sem og þá sem stunduðu þetta áður.

Lán hjálpa okkur ekki! Tek sem dæmi: Ef ég skuldaði 40 milljónir í íbúð og ætti skuldlaust innbú fyrir 20 milljónir en gæti ekki greitt nema bara brot af afborgun af íbúðinni, hvernig ætti það að hjálpa mér að fá 50 milljónir lánaðar, með hærri afborgun og í staðinn gefa út veð í innbúinu?

Er ekki bara verið að tryggja það að hægt sé að ganga í skuldlausan hluta eigna minna?

Já það er margt skrítið í kýrhausnum.

 

Góðar stundir.


mbl.is Íslandslán ekki á dagskrá AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband